Ég viðurkenni

svona síðustu daga mína og kvöldstundir í þessari menningar eða ætti ég frekar að segja fótboltaborg....að ég hef horft á nokkra leiki. Enda erfitt að komast hjá því. Mér leist nú ekkert á Frakkana til að byrja með en núna er ég auðvitað orðinn harðasti(eða einn af þeim) stuðningsmaður þeirra. í kvöld(púff þvílíkar játningar) er heimilisfólk mitt úti að horfa á boltann í massa stemningu og ég sit hér í rólegheitunum með Þýskaland-ítalíu leikinn í sjónvarpinu!!! lágt stillt reyndar. Eftir kvöldmáltíðina sem var á besta pizzastað borgarinnar sem er pönkpizzan. Hún er rekin af ítölum og er dásamlegur staður með leikgarði fyrir börn, ljúfengum mat og götuðum þjónum. En þó ítölsku pönkararnir(stressaðir fyrir leikinn)hafi gleymt að servera mér mína Créme caramel, þá held ég með þeim. Eitt er mér þó mikið í mun og það er að !#"#$(/%$ Portúgalarnir (sem eru engir fagurgalar þegar kemur að fótbolta, híhí) falli úr keppni eða hreinlega verði gerðir brottrækir, mér finnst þeir bara frekar ruddalegir. Ég hef nú bara aldrei séð annað eins en leikinn þeirra og Hollendinga!!
Allez allez allez allez la France og Henry sérstaklega;).

Ummæli

Edilonian sagði…
Hvernig er eiginlega stemningin núna í Germaní??:-o
Móa sagði…
well þeir voru ekkert neitt svakaglaðir eftir leikinn, en þeir eru nú ekkert neitt í tilfinningahitanum vinir okkar svo að það er ekki mikill grátur...á almannafæri að minnsta kosti.
Nafnlaus sagði…
Hvernig er það, ertu búinn að tékka á því hvernig við verðum okkur úti um enska boltann í sumar eins og við höfðum rætt um?

Arnar
Móa sagði…
díses, dont push it!!!
Nafnlaus sagði…
Áfram Frakkland! Ég er í miklum minnihluta þeirra sem halda með Frökkum hérna...

Vinsælar færslur