Ég fæ víst ekki nóg af því að blogga þessa daganna, líklega vegna þess ég sakna margra hér í stórborginni. En hér sit ég með ambassador sódavatn í hönd við fína borðstofuborðið okkar. 'Ibúðin okkar er sem sagt farin að líta út eins og heimili með alle græjer, síðast í dag keyptum við sófaborð, ruslatunnu inn á bað og hrikalega raunsæa DDR vigt (appelsínugul). Við familían fórum út að borða á arabískan stað þar sem verðið var hlægilega lágt og cous cousinn góður. Ísold er komin á það mikið skrið að erfitt er að halda henni kjurri í langa stund, hún vill helst tína allt lauslegt af gólfum til átu og svo er hún mikið fyrir að abbast upp á aðra gesti í þeim tilgangi að sjarmera þá með augnhárunum.
Um daginn fórum við að hitta finnanna góðu á svakalega fríkuðu heimili sem þau leigja með innbúi( riddarabrynja hékk úr loftinu, í baðherberginu voru skeljar á veggjum og hægindastóll á palli fyrir ofan klósettið), eftir því sem leið á kvöldið sáum við að við eigum ótrúlega mikið sameiginlegt og fór það næstum út í öfgar.
En nú er næsta verkefni að skilja eitthvað í þessu tungumáli, keypti ég mér bækur á þýsku: Eine kleine Eisbar og Anne franks tagebuch
svo er ég með eina ljóðabók eftir Heine... en kannski ætti ég að bíða með hana.

Ummæli

Tinna Kirsuber sagði…
ég sakna ykkar svo mikið.... :(
Nafnlaus sagði…
Alveg finnst mér magnað að þið skulið hafa kynnst Finnunum. Maður sér þá fyrir sér svo hræðilega lokaða, en það gildir kannski bara um Finna í Finnlandi.

Gaman að fylgjast með ykkur :-)
Hlakka til að sjá finnana líka.
Tinna Kirsuber sagði…
hvað er heimilisfangið ykkar? er að fara að senda glaðning :D
Móa sagði…
Danzigerstrasse 17
10435 Berlin
Germany

skrifa Geirlaugsdóttir skýrt því það er nafnið á póstkassanum, ég slæ sko ekki hendinni á mót við glaðninga

Vinsælar færslur