Rosenrot



Nýjustu fréttir, Ísold er búin að fá þrjár tennur í efri góm, áttum aðeins von á tveimur en sáum laumufarþegann í morgun ásamt hinum tveim.
Annars er dagurinn búin að fara í jólastúss, sem var ansi notalegt að vera saman loksins í þessu stússi. Við tókum tram niður í Mitte, röltum um hverfið gersamlega frostbitin, hlýjuðum okkur í alls kyns búðum, Arnar fékk sér sína heitelskuðu currywurst með smá kampavíni útá( svolítið skrýtin matarmenningin hérna). Á leiðinni heim ákváðum við að sjálfsögðu að kíkja á Jólamarkaðinn og svipast um eftir jólagjöfum. Þar sem ég stend við að kaupa krydd sé ég Arnar með Ísold í fanginu vera að spjalla við annan föður, sá var með dóttur sína á hjóli. Nei nei hvað haldiði, þá var þetta hann Óliver bassaleikarinn í RAMMSTEIN. Hann sem sagt býr í Prenzlauer en við komumst að því og fleiru því Arnar spurði hann náttúrulega spjörunum úr, Óliver tók vel í það og sagðist öruglega hitta á okkur aftur hér í hverfinu! Þetta er nú bara svei mér þá miklu kúlara en að búa í sama landi og Björk.

Ummæli

baldur sagði…
Þokkalega kúl! Ég held ég skelli bara meisturunum á fóninn í tilefni af þessu :) með öðrum orðum: Gut gut! Ich denke, daß ich eine Rammstein CD heute abend spiele, um diese wundervollen Nachrichten zu feiern!
crazy steve sagði…
kúl. Hey þá er Ísold komin með jafnmargar tennur og Sunna.
Nafnlaus sagði…
Þetta er magnað. Býst ekki við að það verði jafn kúl að vera í Odense en maður má vona:)
baldur sagði…
Ekki má nú gleyma að Odense er vinabær Kópavogs...

Vinsælar færslur