komin til fyrirheitna landsins

loksins loksins, hvers vegna ég hef ekki komið til Írlands fyrr skil ég ekki. En hér er dásamlegt að vera.Við familían ákváðum að halda smá dagbók um ferðina og mun hún vera birt á öðru bloggi. Arnar er með upphafsgreinina sem er auðvitað skrifuð af stakri snilld. Lesið og engan gúnguskap gefið okkur eitt komment við og við þið munuð ekki sjá eftir því.
Hins vegar erum við nú á leið út södd eftir írskan morgunverð því 17. mars hátíðarhöldin eru löngu byrjuð hér í Dyflinni. Jíha ég á afmæli bráðum og hér eftir mun ég alltaf halda upp á paddys vikuna og ekki bara daginn.....lovely.

Ummæli

Tinna Kirsuber sagði…
Til hamingju með daginn elsku Móa!!! Ætlaði að senda sms en þá var inneignin búin, reyni að kaupa á eftir. Njóttu dagsins ljúfust og tölumst sem fyrst. Þín elskandi, Tinna.
Nafnlaus sagði…
17. mars:

Til hamingju með daginn elsku Móa mín! Hafðu það sem allra, allra best í dag og í allri afmælisferðinni á Írlandi:)
Nafnlaus sagði…
Til hamingju með afmælið elsku Móa mín. Hér er vísa frá mömmu þinni og pabba f.31/12.1975,sem þau sendu Sigurást langömmu þinni.
Tölvísi tólffætlunnar
talsverð er.
Ekkert án áætlunar
eins og lenska hér.
afi og amma
Nafnlaus sagði…
til hamingju með daginn. Fjölskyldan á Flókagötu.
ThP sagði…
Til hamingju með Daginn Móheiður!

kv.
Þuríður
Nafnlaus sagði…
tilhamingju med afmealid keara systir reyndi ad hringja en dad svaradi ekki
Nafnlaus sagði…
þar sem ég get ekki skrifað komment á ferðabloggið . Félicitations pour ton anniversaire!
Fróðleikur um daginn. EIns og við pabbi þinn sögðum þér liklega; þá var Guillaume Appolinaire f. 25 ágúst, særðist í fyrri heimstyrjöldinni 17. mars 1918 og lést svo 9. nóvember sama ár tveimur dögum fyrir vopnahléið svo enginn tók eftir dauða þessa mikla skálds og hann dó einn og yfirgefinn. Annar mikill maður fæddist í 13. ágúst man ekki árið og dó gleymdur öllum 17. mars það var enginn annar en Napoléon. Mamie Rose
Tinna Kirsuber sagði…
23. mars 2006

Pakkinn þinn leggur af stað í dag :D

Vinsælar færslur