ó mig auma

Já ótrúlega hæfileikaríkir háskólanemar og norðurmýrarhúsmæður geta líka veikst... Nei ég hefði svo sem ekki trúað því heldur. En upplitið á mér (aumingjans ég í efsta veldi) var hreint út sagt ömurlegt. Lungum og lifrum var ælt og dagurinn fór í eitt allsherjarmók. Ofan á það bætist að augað mitt er bólgið og undarlegt á að líta líklega af illkynja sýklum! Annað er það að frétta að mér var bjargað frá skömm aldarinnar í fagnaði hér í bæ, þvi þó ég hafi þrábeðið nokkra gesti um að syngja með mér Purple rain eða Susie Q þá þáðist enginn boðið, úff. Hins vegar njóta litlu prinsibessurnar mínar gaulsins í mér því við höfum farið út í miklar samanburðarrannsóknir á Vísnabókinni í nokkrum útgáfum. Hver veit nema purple rain verði vögguvísan annað kvöld. Jæja ég ætla fara fá mér smá kóka kólalögg og kringlu.

Ummæli

ég ætla að gefa þér ferð með eiríki á ölver í afmælisgjöf næst. þið tvö og purple rain.
Móa sagði…
þakka þér kærlega fyrir Tinna vonandi nærðu að sannfæra hann í millitíðinni að hann verði ekki að almennu atlægi.

Vinsælar færslur