Í sinnepsveröld


Í miðbænum

Bakgarðurinn



við endan á canalnum

Craiglockhart-grunnskólinn

Pipiogpupu er jú komin yfir atlantsálar eða til Skotlands. Ekki að hún væri neitt ósátt við hina undurfögru norðurmýri, ónei. Eftir tveggja mánaða pakkningartörn( því pipiogpupu getur ekki átt lítið dót eins og fólk ætti að eiga ef það flytur mikið) flaug hún út ásamt fylgifiskum stórum og smáum með innan við 100 kílógramma farangur til Edinborgarfjarðar. Leigubílaferðin sem slík var ekkert ævintýraleg...eiginlega ósköp venjuleg. Þegar komið var inn í borgina blöstu húsaraðir við, velflest úr múrsteinum eins og ungviðið athugaði og með mörgum skorsteinum á hverju húsi. Landslagið líkist því mjög heimili Vöndu og Mary poppins. Inn úr leigubílnum komum við beint inn í framtíðarheimilið okkar þar sem tók við okkur leigusalinn og gekk það allt saman að óskum þannig að hér sit ég í íbúðinni sem er ósköp fín, með húsgögnum. Eitt vakti athygli mína hér fyrst um sinn, íbúðin er öll máluð í sinnepslitrófi frá gulu dönsku yfir í franskt dijon...afskaplega huggulegt. Það er hátt til lofts og baðherbergið er himinblátt :) P.s.  hér er svefnsófi!

Svör við þeim fjölspurðu spurningum sem ritstjóri fékk áður en hún fór af landi brott: Já við erum flutt til Edinborgar, Edinborg er ekki í Þýskalandi, Nei Arnar fór ekki að nema Sítarleik í Egyptalandi (heyrt á seltjarnanesi) Nei ég veit ekki hvað lengi og já við tókum ekkert sérlega mikið dót með okkur!  og já ég er ættuð ofan af Snæfellsnesi og finnst jarðaberjasjeik bestur.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Nafnlaus sagði…
Rosalega er gaman að sjá myndirnar. Var einmitt að spá í hvort það væri bakgarður. Hugsa til ykkar öllum stundum. Ykkar amma Bryndís
Nafnlaus sagði…
p.s. það var ég sem deletaði fyrsta commentinu, það kom nefnilega 2svar! bh
Heiða sagði…
vá, hvað bakgarðurinn er geeeeeeeeeeðbiiiiiiiiilaður!

Vinsælar færslur