haustverkin+sumarprof-menning

ówell, hef ekki verið neitt sérlega dugleg á þessum vettvangi en þar sem ég á að vera að læra akkurat núna þá...
Heimilið barnlaust en ekkert sérlega laust við að þurfa smá tiltekt, langar alltaf að laga til á verstu tímum. Helgin fór í smá haustverk, við Ísold tíndum rifsber úti í garði á meðan Arnar og Krílína( nýja nicknamið þar sem hún K. hefur staðið í stað á kúrfunni og aðeins þyngst um 300gr á þremur mánuðum)horfðu á og skriðu út um alla lóð. Á laugardagsmorgni var svo farið snemma á fætur, og ég fór í að búa til sultur á meðan feðginin þrjú voru sett fyrir framan sjónvarp. Fyrir klukkan ellefu hafði ég svo búið til slatta af rifsberjahlaupi og líka Norðurmýrarsultu(mín eigin uppfinning í bland við stuld á franskri uppskrift!). Með hana var brunað út í mosfellssveit í sultukeppnina og þannig sluppum við algjörlega við að gera nokkuð menningarlegt á menningarnóttina! Tada.... Úrslit voru kynnt kl 15 og ég fékk ekki verðlaun, sem hefði ekki verið neitt svekkjandi ef ég hefði ekki verið með 6 efstu. Næst ætla ég að vinna það er alveg ljóst. Keyptum svo ferskt grænmeti á markaðnum sem við gæddum okkur á um kvöldið.

Uppskrift að Norðurmýrarsultu:
Rifsber soðin með einni ferskju í pott og síðan ferskja, stönglar og ber sigtuð frá safanum.
í öðrum potti hindber og mynta soðin saman
Síðan er þessu blandað saman og sykrinum bætt útí.
Hlutföll eru alltaf 1/1 af sykri og berjum sem þýðir eitt kíló af berjum á móti einu kílói af sykri.
Í þetta skiptið reyndi ég að hafa sykurmagnið í minna lagi og slumpaði bara.
Sultan er ljúffeng verð ég bara að segja.

Ummæli

Unknown sagði…
Girnileg sulta! Sniðugt að skella sér í sultukeppni :-)
Nafnlaus sagði…
Vá, en dugleg. Þú ert að minnsta kosti með þeim allra efstu í duglegu húsmæðrakeppninni þetta árið.
Edilonian sagði…
Gvvuðððð hvað ég er stolt af þér:o)
En neineinei allt fullt af þýskurum ennþá:-o
Nafnlaus sagði…
.. Til hamingju með að vera meðal sex efstu.. ég verð að fá að smakka.. uppskriftin hljómar líka svo hrikalega vel, hindber, minta og ferskja til að krydda rifsberjabragðið. Ég er greinilega ekki svona tilraunaglöð í sultugerðinni minni... bara venjuleg og óblönduð bláber hjá mér, var reyndar að spá í að setja döðlur með þeim, hefuru prófað það?.. næsti sultuskamtur verður meira kreatívur
Móa sagði…
en hressandi að fá svona mörg komment eftir verðlaunaleysisbömmer. það birtist mynd í mogganum af Arnari og Karólínu á sultukeppninni, mjög sæt auðvitað.

Vinsælar færslur