strætóeltingur
Ísold tók þátt í því að skreyta strætó fyrir jólin með leikskólanum sínum-Sólborg. Það er hægt að finna myndina hennar á heimasíðu strætó og svo auðvitað á strætó-Ísold og hennar félagar skreyttu strætó 166- nú ætla ég að fara keyra um alla borg og sjá þennan óendanlega fagra strætó. Annars sagði ég stelpunum mínum frá því þegar ég var sótt af kópavogsstrætó á stelluróló einu sinni-þær voru impóneraðar svo ekki sé meira sagt. Hvort það var Ikarusinn eða Leylandinn veit ég ekki en mikið var nú kópavogsstrætó alltaf flottur!
Ummæli
sástu myndina hennar Ísoldar?